Doddi í Danmörku
07.02.2008 17:33:56 / doddi

Barnaland

Erum komin með barnalandsiðu sem heitir www.prinsthorvaldsson.barnaland.is Kveðja doddi og disa

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 18:52:46 / doddi

3ja gráðan

Hérna til vinstri stendur 3ja gráðan og ef klikkað er á það sjást svör við nokkrum heimskulegum spurningum sem ég fékk

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 20:40:00 / doddi

Skoðanakönnun

Jæja þá er komin ný könnun. bið fólk endilega að svara og svo má rökstyðja svörin í commentum hér fyrir neðan

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 16:12:04 / doddi

Loksins Loksins

Jæja þá erum við búin að kaupa okkur digtal myndavél og slóðin á síðuna er hérna fyrir neðan til vinstri og líka hérna http://new.photos.yahoo.com/kiwi_dis


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 16:15:00 / doddi

Til Hamingju

Til Hamingju Keflvikingar með stórglæsilegan bikarsigur :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 18:50:33 / doddi

Stórleikur að byrja

jæja í kvöld fer fram stórleikur í meistardeild evrópu þar sem Glasgow Celtic með Thomas Gravesen vin minn innanborðs taka á móti FC KÖBENHAVN og það verður vonandi hörkuleikur þar sem Marcus Allbakc setur vonandi 2 fyrir FCK og klárar þetta. en nóg um það í bili. Áfram FCK eða Forza eins og hann Thomas vinur minn segir alltaf. Kveðja Doddi sem var á Íslandi.


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 13:33:09 / doddi

Það er illa farið með mann.

Jæja eins og glöggir hafa tekið eftir þá er komið líf á síðuna aftur og ég er líka búinn að breyta soldið og bæta við tenglum og flokka betur. Vona að þetta verði ykkur til gavn og glæde í framtíðinni :) læt eina mynd fylgja með frá því að við Dísa fórum á Gavin Degraw með Tine

Doddi får øl i nakken =)

Sem betur fer fyrir mig varð aldrei neitt úr þessu ;) en góð mynd samt sem áður.

ps: og ef ég á að halda áfram að blogga þá vil ég sjá komment á síðunni  :evil:


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 13:55:30 / doddi

Nýlegar myndir af Týru

Jæja þá fáið þið loksins að sjá nýjar myndir af Týru þessar voru teknar þegar Anna,Raggi og Siggi og Hrefna voru hjá okkur í lok ágúst


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 12:15:09 / doddi

Nýr starfsvettvangur

Ég var að spá í svolitlu um daginn þegar Anna og Raggi voru hérna ,þannig er mál með vexti að okkur var boðið í afmæli hjá íslenskum strák sem býr á skovlyporten og þar komu nokkrir vinir hans líka sem er svosem ekki frásögur færandi nema að einn þeirra starfar sem karlstrippari og svona líka helskorinn og massaður. Sem leiðir okkur að pælinguni, hvernig líst ykkur á hugtakið strippari alþýðunar ? er það ekki bara snilld ? þá gæti ég mætt á svæðið og Balli og þess vegna Jón þór gætu verið með og við myndum sýna þessu liði hvernig alvöru karlmaður er vaxin, það er með þessa fínu tunnu í staðinn fyrir six pack. Strippari Alþýðunar látið mig endilega vita hvað ykkur finnst ,á ég að skipta um vettvang ?

kveðja Tunnan 

Doddi (16)


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 20:22:10 / doddi

Halló

Ég þarf að fara að blogga. Reyni að gera eitthvað í því á næstu dögum :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 23:06:47 / doddi

þetta skýrir sig sjálft

Kæru dömur, það er skylda mín sem karlmaður í þessum heimi að birta þetta.

HM reglur fyrir konur

TAKIÐ eftir allar konur! Það er mikilvægt fyrir ykkur að lesa áfram, það gæti bjargað hjónabandinu eða sambandi. Karlmenn í heiminum hafa sett húsreglur fyrir lokakeppni HM í Þýskalandi og það er eins gott að þið farið eftir þeim.

REGLURNAR:

1. Frá 9. júní til 9. júlí 2006 skaltu fylgjast vel með fréttum á hmbolti.net svo þú vitir hvað er að gerast á lokakeppninni í Þýskalandi. Þá getum við talað lítilega saman á meðan á lokakeppninni stendur þar sem ég mun ekki ræða um neitt annað en FÓTBOLTA.

2. Á meðan á lokakeppni HM stendur er sjónvarpið mitt – alltaf og án allra undantekninga.

3. Það er allt í lagi ef þú þarft að komast framhjá sjónlínu minni að sjónvarpinu svo lengi sem þú skríður eftir gólfinu og truflar mig ekki. Ef þér skildi detta í hug að standa nakin fyrir framan sjónvarpið farðu þá strax aftur í fötin þar sem ég mun ekki hafa tíma til að fara með þig til læknis fáir þú kvef.

4. Á meðan á leik stendur verð ég heyrnalaus, mállaus og blindur gagnvart þér – nema ef til þess kemur að ég þurfi nýjan bjór eða eitthvað að borða.

5. Það er góð hugmynd fyrir þig að hafa alltaf alla vega tvær kippur af bjór vel kældar inni í ísskáp og nóg af snakki. Ef þú hagar þér vel fyrir framan vini mína máttu horfa á sjónvarpið frá klukkan 12 á miðnætti til 6 um morguninn ef það eru ekki neinar endursýningar á þeim tíma.

6. Ef þú sérð að ég er reiður eða pirraður þegar liðið mitt er að tapa viltu þá EKKI segja “þú jafnar þig – þetta er bara leikur” eða “ekki hafa áhyggur – þeir vinna kannski næst.” Ef þú segir þetta verð ég bara reiðari eða pirraðari. Mundu ávallt að þú munt aldrei vita meira um fótbolta en ég og svona setningar verða bara til þess að við skiljum fyrr.

7. Þú mátt horfa á EINN leik með mér og þú mátt tala við mig í hálfleik, en bara þegar auglýsingarnar eru og bara ef staðan er góð. Taktu líka eftir að ég sagði EINN leik, ekki reyna að nota lokakeppni HM sem einhverja hörmulega tilraun til að “eyða tíma saman”.

8. Endursýningar á mörkum eru mjög mikilvægar. Mér er alveg sama hvort ég hafi séð markið áður eða ekki, ég vil sjá það oft og mörgum sinnum í viðbót.

9. Segðu vinkonum þínum að eignast ekki börn á þessum tíma, ekki halda nein barnaafmæli eða aðrar fáránlegar veislur vegna þess að:
a) ég mun ekki mæta
b) ég mun ekki mæta og
c) ég mun ekki mæta

10. En athugaðu, ef vinur minn bíður mér í heimsókn til að horfa á leik er ég rokinn.

11. Markaþættirnir í lok dagsins eru alveg jafn mikilvægir og leikirnir sjálfir. Ekki detta í hug að láta út úr þér setningu eins og “en þú hefur séð þetta áður” eða “af hverju skiptir þú ekki um stöð?” Lestu aftur reglu númer 2.

12. Og að lokum, sparaðu þér setningu eins og “Guðs sé lof af lokakeppni HM er bara á 4 ára fresti”. Ég heyri ekki þessa setningu enda tekur Meistaradeildin, Enski boltinn, Ítalski boltinn, Spænski boltinn og fleira við.

Takk fyrir að virða reglurnar.

Karlmenn um heim allan!


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 18:07:16 / doddi

Sorry

ég kann ekkert á tölvur þannig að það kemur mynd seinna


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 10:07:20 / doddi

Skaginn Íslandsmeistari 2006

Halló halló jæja þá er kominn tími á að láta aðeins í sér heyra ;) Fyrir þá sem ekki vissu þá er ég hættur hjá Pihl og sön vegna óleysanlegs ágreinings sem ég ætla ekkert að fara nánar út í að öðru leyti en það að ég get sagt ykkur það að ég er á fullu að leyta og ætti að fá að vita eitthvað á þriðjudag. Svo er hún Dísa mín byrjuð í skólanum og gengur ágætlega held ég bara. Aðalvandmálið hjá henni er kannski að geta skilið og tjáð sig en þetta er samt allt að koma hjá henni og ég fullyrði það að hún er orðinn betri en fólk sem við kynntumst hér sem er búið að búa hér þónokkuð lengur en við. Týra plummar sig nokkuð vel bara er orðin tæpra 4 mánaða núna og stækkar ekkert smá hratt. Hún er farinn að skilja þessar einföldustu skipanir eins og kjurr sestu og nei í höstum tón. Og hún er farin að gera sér grein fyrir því að hún á að gera stykkin sín úti en auðvitað verða slys eins og gengur og gerist en samt aðallega þegar við erum að klikka á því að fara með hana út ;) En til að svara skotum á mig sem hafa komið á mig á þessari síða vegna gengis skagamanna undanfarið. Frá Fh ingum vel að merkja. Þá vil ég bara benda fh ingum á það að það er ekkert skrýtið að þeir heyri ekkertt í okkur úr þessum fílabeinsturni sem þeir hafa hreiðrað um sig upp í ;) En ég get sagt þeim eitt , að fallið úr honum verður hátt og hratt þegar þar að kemur. Það kemur að því að allir þessir aðkeyptu leikmenn vilja fara heim;) Ég meina það eru takmörk fyrir því hvað danirnir láta bjóða sér það að kaupa kassan af bjórnum á 4000 þús kall ;) En ef við tölum í alvöru þá er það alveg deginum ljósara að á sama hátt og fh ingarnir eru með langbesta liðið og mega vel við una ,þá verðum við skagamenn að fara í alvarlega naflaskoðun. ég held að menn (þar á meðal ég) hafi gleymt sér soldið í þeirri nostalgíu að týndu synirnir væru komnir heim það er Bjarni,Þórður og Arnar en alveg gleymt því að 2 af bestu varnarmönnum deildarinnar væru farnir (Gulli Jóns og Reynir Leós) Og það segir sig sjálft að þegar lið missir 2 svona máttarstólpa og fær ekki nema einn mann í staðin (Árna) sem er reyndar mjög frambærilegur en hefur samt enga reynslu úr efstu deild þá veit ekki á gott. Ég get nú ekki kvatt hér án þess að minnast á endanlegt fall R listans í gær og ég er á þeirri skoðun á Villi eigi ekki að ræða við neinn annan en Ólaf f það á bara að hætta þessari helvítis þrjósku og viðurkenna það sem allir sjá. Sem er það að F listinn er ekkert annað en útibú frá sjálfstæðisflokknum sem á að sameinast honum sem fyrst.
 
Áður en ég kveð þá verð ég að minnast á nýtt hugtak sem ég heyrði að væri að ryðja sér til rúms á Íslandi en það er
Að Púlla Eyþór.
 Ég geri ráð fyrir því að fólk viti við hvað er átt. 
jæja þetta er nóg í bili
 
Hilsen Doddi danski  

» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 18:05:41 / doddi

shitt

það átti ekkert að verða svona stórt helv fram merkið ;) En jæja það verður að hafa það. Annars er ég að fara á parken á morgun að sjá Fck spila við erkifjendurna í Bröndby. það verður geggjað :) ég er að fara með honum Bigga sem býr ´hérna í næsta húsi honum áskotnaðist einn auka miði sem hann bauð mér til kaups.

Jæja bless og baráttukveðjur frá dk áfram Fck


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 17:50:58 / doddi

Til Hamingju Framarar

Til hamingju allir Framarar með íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Við Garðbæingar tökum þetta á næsta ári


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3